Ratings & Reviews performance provides an overview of what users think of your app. Here are the key metrics to help you identify how your app is rated by users and how successful is your review management strategy.
Embla er raddknúið aðstoðarforrit fyrir snjallsíma. Þú getur talað við Emblu á íslensku, spurt hana spurninga og hún svarar um hæl. Embla veitir meðal annars upplýsingar beint úr upplýsingabrunnum ólíkra fyrirtækja, stofnana og samstarfsaðila. Öllu að jöfnu getur Embla veitt upplýsingar um fólk og fyrirbæri, veður, strætósamgöngur, dagsetningar, landafræði, fréttir, sjónvarpsdagskrá, opnunartíma verslana, einföld reikningsdæmi, breytt gengi gjaldmiðla og ýmislegt fleira. Embla er gefin út af íslenska máltæknifyrirtækinu Miðeind ehf. Hún er ókeypis til notkunar, inniheldur engar auglýsingar og safnar ekki persónuupplýsingum. Virkni Emblu er byggð á opna máltæknihugbúnaðinum Greyni.
